How did I miss that one — don’t miss the nextHowDidIMissThat.com

271 upcoming events

← Events · Phoenix · Reykjavík

Poster: Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson

Music

Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson

  • Music
  • Jazz

Show 8:30 PM · Ends 9:30 PM

Hannesarholt
Grundarstígur 10, Reykjavík

Share

Know someone who’d be interested?

WhatsApp (opens in a new tab) Email

Every Thursday, the best shows of the weekend in Reykjavík, by email. Get the newsletter

Á tónleikunum kemur fram hljómsveit saxófónleikarans Óskar Guðjónssonar, Move þar sem Óskar vildi takast á við sígildasta form jazztónlistar, lúður með píanótríói. Hann stofnaði því kvartettinn MOVE með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara. Þeir hafa æft vikulega frá árinu 2017 og leita leiða til að nálgast eigið efni með eigin aðferðum og allri þeirri fjölbreytni sem þeir finna upp á. Fjórmenningarnir eru þekktir í íslensku tónlistarlífi og hafa allir skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun á fjölbreyttustu viðfangsefni. Ekki skortir þar áskoranir, meðal annars þá hvort þeirra aðferðir við tónsmíðar og samleik sé lituð af því sem má eða má alls ekki. Hvort réttar skoðanir, samkvæmt þeim reglum og siðvenjum sem gilda til dæmis um íslenska tungu, hafi áhrif á sköpun og túlkun tónlistar. Þeir vilja brjótast úr höftum slíkrar rétthugsunar í tónsmíðum og túlkun, leika lausum hala.

Frá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxófónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist, jazz (djass), stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveitin ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteina, tónleikaferðir um Evrópu norðanverða skipa stóran sess í lífi hljómsveitarmeðlima. Þeir eru, auk Óskars, bróðir hans Ómar gítarleikari, Magnús Tryggvason Elíasson trommuleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari. Samstarfs Óskars og Skúla Sverrissonar, tónskálds og bassaleikara, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum jazztónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar

HowDidIMissThat.com is an independent listing and does not organize this event.

Stay in the loop

Stay in the loop

The weekend newsletter

Every Thursday, the best shows of the coming weekend in your city, in one email. Free, and you can unsubscribe in one click.

Your email is used for this newsletter only. Privacy

Follow us on Facebook

The shows we spot, right in your feed.

Nothing from Facebook loads until you click.