How did I miss that one — don’t miss the nextHowDidIMissThat.com

271 á dagskrá framundan

← Viðburðir · Nagoya · Reykjavík

Veggspjald: Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson

Tónlist

Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson

  • Tónlist
  • Jazz

Sýning 20:30 · Lýkur 21:30

Hannesarholt
Grundarstígur 10, Reykjavík

Deila þessari síðu

Þekkirðu einhvern sem hefði gaman af þessu?

WhatsApp (opnast í nýjum flipa) Tölvupóstur

Reykjavík: bestu sýningar helgarinnar í tölvupósti, í hverri viku (fimmtudagur). Fá fréttabréfið

Á tónleikunum kemur fram hljómsveit saxófónleikarans Óskar Guðjónssonar, Move þar sem Óskar vildi takast á við sígildasta form jazztónlistar, lúður með píanótríói. Hann stofnaði því kvartettinn MOVE með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara. Þeir hafa æft vikulega frá árinu 2017 og leita leiða til að nálgast eigið efni með eigin aðferðum og allri þeirri fjölbreytni sem þeir finna upp á. Fjórmenningarnir eru þekktir í íslensku tónlistarlífi og hafa allir skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun á fjölbreyttustu viðfangsefni. Ekki skortir þar áskoranir, meðal annars þá hvort þeirra aðferðir við tónsmíðar og samleik sé lituð af því sem má eða má alls ekki. Hvort réttar skoðanir, samkvæmt þeim reglum og siðvenjum sem gilda til dæmis um íslenska tungu, hafi áhrif á sköpun og túlkun tónlistar. Þeir vilja brjótast úr höftum slíkrar rétthugsunar í tónsmíðum og túlkun, leika lausum hala.

Frá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxófónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist, jazz (djass), stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveitin ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteina, tónleikaferðir um Evrópu norðanverða skipa stóran sess í lífi hljómsveitarmeðlima. Þeir eru, auk Óskars, bróðir hans Ómar gítarleikari, Magnús Tryggvason Elíasson trommuleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari. Samstarfs Óskars og Skúla Sverrissonar, tónskálds og bassaleikara, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum jazztónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar

HowDidIMissThat.com er óháð viðburðadagatal og skipuleggur ekki þennan viðburð.

Fylgstu með

Fylgstu með

Helgarbréfið

Í hverri viku (fimmtudagur) færðu bestu sýningar komandi helgar í borginni þinni í einum tölvupósti. Ókeypis, og þú afskráir þig með einum smelli.

Netfangið þitt er eingöngu notað fyrir þetta fréttabréf. Persónuvernd

Fylgdu okkur á Facebook

Sýningarnar sem við finnum, beint í strauminn þinn.

Ekkert frá Facebook hleðst fyrr en þú smellir.